14 February 2009

Ganga á Ingólfsfjall


Farin var gönguferð á laugardag með FSu útivistarhópnum hans Sverris íþróttakennara. Slóst heimilisfaðirinn með í hópinn og labbaði með skiptinemunum og hinum u.þ.b. 20 krökkum. Veðrið var gott, hiti um 5°c og nokkuð bjart. Gengið var upp hjá Alviðru sem er nokkuð brött leið og var nokkur snjór í slóðinni. Gengum við svo uppá Inghólinn sjálfan og uppgangan alls um 2 klst. Var frekar þungt undir fæti uppi á fjallinu enda snjór yfir öllu. Niðurleiðin var sumum erfið enda hált og bratt efst í fjallinu.

No comments: